Shri Mataji Nirmala Devi

Sahaja Yoga á Íslandi

Tenglar:



Vishwa Nirmala Dharma

 

Shri Mataji Nirmala Devi

SHRI MATAJI NIRMALA DEVI (FRÚ NIRMALA SRIVASTAVA) 21/03/1923 – 23/02/2011
Miðvikudaginn 23. febrúar sl. andaðist Shri Mataji Nirmala Devi (Frú Nirmala Srivastava) 87 ára að aldri í Genova á Ítalíu. Hún lagði grunn að og stofnaði hreyfingu um hugleiðslu sem nefnist Sahaja Yoga. Sahaja Yoga samtökin starfa víða um heim í yfir eitt hundrað löndum. Á Íslandi hefur hún starfað í 7 ár með aðsetur í Reykjavík á Sauðárkróki og á Akureyri og byggist starfsemin á frjálsum aðgangi þeirra sem vilja taka þátt.

Bernsku- og uppvaxtarár

Lífshlaup Shri Mataji var einstakt og engu öðru líkt. Hún veitti leiðsögn sína um lífshamingjuna jafnt háum sem lágum um allan heim. Stórkostlegan boðskap sinn flutti hún af ást og án nokkurra öfga, hvort sem hún gekk um berfætt með Mahatma Gandhi eða leiðbeindi kóngafólki. Hún fæddist inn í konunglegt ættarveldi en bjó sem barn um tíma nálægt Mahatma Gandhi í bækistöð (ashram) hans ásamt foreldrum sínum. Hún las læknisfræði og tók þátt í baráttu fyrir frelsi Indlands með aðferðum Gandhis. Hún varð ástrík móðir, amma og langamma og kona mikilsháttar stjórnmálamanns sem fékk margvíslegar heiðursorður konunga og forseta margra landa og þar á meðal aðalstign Englandsdrottningar. En þrátt fyrir viðburðaríkt líf sitt réðist hún í enn mikilvægara verkefni á fullorðinsárum þegar börn hennar voru uppkomin.

Shri Mataji fæddist í kristinni fjölskyldu á Indlandi. Frá unga aldri vissi hún sem var að hún hafði sérstaka andlega hæfileika sem hún þyrfti að gera öllum kleift að eignast hlutdeild í. Þess vegna fann hún Sahaja Yoga hugleiðsluaðferðina sem hún kenndi án þess að taka nokkurt gjald fyrir. Með einfaldri aðferð þróaði hún einstakt ferli til sjálfsvitundarvakningar svo stórir hópar fólks gátu auðveldlega öðlast frið innra með sér og fundið sína andlegu krafta með hreinni hugleiðslu. Hún tók engar greiðslur fyrir kennslu sína og lagði áherslu á að það væri sjálfsagður réttur hvers og eins að geta farið þessa leið og þessi leið ætti að vera aðgengileg öllum sem þess óskuðu án nokkurs kostnaðar. Eftir henni er haft: ”Það getur enginn friður náðst meðal manna fyrr en hver og einn hefur öðlast frið í sálu sinni".

Sahaja Yoga

Nú var hafinn nýr kafli í lífi hennar. Næstu fjörtíu ár ferðaðist hún um allan heim og kenndi hugleiðslu. Hún var elskuð og dáð sem andlegur leiðtogi, framúrskarandi ræðumaður og einkennandi var hversu mildileg hún var í leiðsögn sinni. Hún var tilnefnd til friðarverðlauna Nóbels og tók við margs konar viðurkenningum um víða veröld.

Ávextirnir af umhyggju hennar og kærleika uxu jafnt og þétt. Á Indlandi stofnaði hún heildstæða heilsu- og rannsóknarmiðstöð ásamt alþjóðlegri krabbameins-rannsóknarstöð í Mumbai. Miðstöð fyrir ofsóttar konur og börn stofnaði hún í Delhi og alþjóðlega tónlistarakademíu í Vaitarna til að efla klassíska indverska tónlist og aðrar listir.

Allt frá fæðingu var hún kölluð Nirmala, sem þýðir ”hin hreina”. Að endingu var hún þekkt sem Shri Mataji Nirmala Devi – Hin æruverðuga móðir. Fyrir mörgum er hún þýðingarmesta andlega vera okkar tíma.

Óháð kynþætti, trú, aldri eða stöðu hafa milljónir venjulegs fólks nú lært að nýta sér eigin innri andlegan kraft. Menn öðlast vald til að finna jafnvægi í lífinu. Arfur Shri Mataji lifir áfram í meira en 100 löndum hjá sjálfboðaliðum sem kenna öðrum tækni hennar. Í anda þess sem hún kenndi, munu þeir sem hafa fengið hjálp, hjálpa öðrum eins og kviknar ljós af ljósi.

Avatar nútímans

Claes Nobel (afabarn Alfreðs Nobel) lýsti Shri Mataji sem „ Avatar nútímans“ (sendiboða guðs). Fylgjendur hennar munu í hjarta sínu finna fyrir henni sem eilífri, umfaðmandi og kærleiksríkri móður. Eiginmaður HH Shri Mataji Nirmala Devi heitir Sir C.P. Srivastava og lifir hann konu sína ásamt dætrunum Kalpana og Sadhana. Þau ásamt barnabörnum, barnabarnabörnum og miklum fjölda fylgismanna fylgdi henni til grafar á Indlandi.

Frekari forsaga:

Foreldrar Shri Mataji, Cornelia og Prasad Salve, voru af hinni þekktu konunglegu Shalivahana fjölskyldu, sem lék stórt hlutverk í frelsishreyfingu Indlands gegn breskum yfirráðum. Faðir hennar var náinn samstarfsmaður Mahatma Gandhi og var hann í fyrstu frjálsu ríkisstjórn Indlands ásamt því að taka þátt í að semja fyrstu stjórnarskrá landsins. Hann var þekktur fræðimaður, talaði 14 tungumál og þýddi Kóraninn á Marathi (tungumál 90 milljóna í mið- og vestur Indlandi). Móðir hennar var aftur á móti fyrsta konan á Indlandi til að ljúka doktorsprófi í stærðfræði.

Í bernsku bjó Shri Mataji ásamt foreldrum sínum í „ashram“ (bækistöð og aðsetur skoðana – og trúbræðra) hjá Mahatma Gandhi. Viska hennar og djúpur skilningur kom strax í ljós og jafnvel Gandhi leitaði ráða hjá henni, barninu, í andlegum efnum. Shri Mataji las síðar læknisfræði og tók þátt í frelsisbaráttu stúdenta gegn yfirráðum Breta. Í þeirri frelsisbaráttu lentu báðir foreldrar hennar í fangelsi.

Frá árinu 1970 var Shri Mataji óþreytandi við að ferðast um víða veröld og kenna Sahaja Yoga hugleiðsluaðferðina. Hún sýndi hvernig hver og einn getur áreynslulítið vakið upp andlegan kraft sinn eða «kundalini». Hún hefur alltaf haldið því fram að ekki sé hægt að kaupa sér eða selja öðrum andlega upplifun og hún fordæmdi falska spámenn eða „gúrúa“ sem höfðu meiri áhuga á að auðgast sjálfir en á andlegri vakningu fólks.

Viðurkenningar

Shri Mataji fékk margs konar viðurkenningar fyrir fórnfúst ævistarf sitt. Þar á meðal:

Frekari upplýsingar um Shri Mataji Nirmala Devi:
www.sahajayoga.org/shrimataji

Hafið samband vegna fréttatilkynningar:
Daði Guðbjörnsson
Gsm: 8977434
Sími: 5516566
dadig@simnet.is

Sahaja Yoga á Íslandi - Dalbraut 27, gengið inn frá Sundlaugavegi - 105 Reykjavík.
Kynningarfundir fyrsta & þriðja hvern mánudag hvers mánaðar kl 20:00.